Þjálfari ársins hjá Þrótti, Jens Elvar Sævarsson mætti sem gestur og gestastjórnandi í fjarveru Álfrúnar. Hann er án gríns alltaf í góðu skapi og segist tileinka sér jákvæða hluti í fari annarra. Haustið 2025 byrjaði hann með hlaupahóp Þróttar og stefnir á að ná fjöldanum upp í 100 meðlimi. Það skemmir svo ekki fyrir að honum finnst hrikalega gaman að rausa um hlaup og heilbrigðan lífsstíl og smellpassaði því í settið.
Í fimmta þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fá Linda og Álfrún Dr. Vöku Rögnvaldsdóttur í frábært spjall um svefn, hjartslátt, æfingaálag og fleira. Fastir...
Katrin.is kíkti í settið með hlaupasöguna frá París og fór yfir farsælan feril. Heyrðum líka í Fjólu í Fætur toga sem sagði okkur frá...
í 9. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti hringja Álfrún og Linda til Danmerkur og heyra í nýju uppáhalds hlaupafyrirmyndinni sinni, Jónu Dóru Óskarsdóttur. Hún...